Ég hef tekið þrjár atrennur að þessari færslu en undanfarið hefur tölvuskömmin ákveðið að endurræsa sig í hvert sinn sem ég hef skrifað eina efnisgrein í bloggfærslu. Þar með er allt týnt og tapað í það sinnið. Elsku maðurinn féllst á að skoða tölvuskinnið og reyna að sjúkdómsgreina (stór hluti tölvukunnáttu minnar lenti í Óminninu mikla) […]
Vinkona mín og sessunautur sagði, með aðdáunarsvip: “You look more stunning every day!” - í morgun. Satt best að segja var ég frekar sammála henni þótt auðvitað hafi ég ekki getað tekið þessu hrósi nema af kvenlegu lítillæti … Frá því skóli hófst (afar nýverið) hef ég reynt að dressa mig upp svo ég standi […]
Til að byrja með er rétt að væla yfir því að Statcounter-teljarinn minn á bloggsíðunni “dó”. Sá teljari hafði þann kost að sýna hvaðan lesendur komu; þótt ekki hafi sosum verið mikið að græða á IP-tölunum gáfu nöfn tölva eða netþjóna fínar vísbendingar um einstaka lesendur. Ég get sosum látið núverandi teljara (sem ég læt […]
Árviss umræða um svokallaða “busun” fer nú fram innan og utan veggja framhaldsskólanna og er það vel. Busun er náttúrlega bara tímavillt rugl eins og skólameistari í FG bendir á … en ég ætla annars ekki að fjalla um busun. Ég ætla að vekja athygli á orðum inspector scholae, eða formanns nemendafélagsins, í MR. Sá […]
Í gær voru hinir venjulegu maraþonfundir í annarbyrjun. Með annað eyrað stillt á mute gat ég rennt yfir og prentað út ýmist dót, s.s. kennsluáætlanir og það sem nota á í næstu viku. Á fundi 2, sem var í öðrum sal, sleppti ég tölvunni en er hreykin af því að hafa druslast með græjuna á fund […]
Eiginlega nenni ég ekkert að blogga þessa dagana. Sennilega er ég orðin of góðu vön eftir hina löngu pásu sumarsins.
Allt gengur mér í haginn, sjálfsagt af hinu nýja sláandi lífsmottó “Ég vænti einskis / ég óttast ekkert / ég er frjáls!” ? Ég hallast að því að hinu góða slagorði sé að þakka t.d. það […]
Ég pantaði mér tíma í klippingu og skverun, núna rétt áðan. Þekkti strax á röddinni að ég væri að tala við Hörpu, fyrrum nemanda minn en núverandi hárgreiðslukonu. Það var laus tími hjá nema, á morgun. Við Harpa vógum þetta og mátum sem svo að ekki væru hundrað í hættunni því engar stórfelldar breytingar á lit […]
Geðkvarðinn hækkaði um leið og ég fékk gömlu albúmin (það vantar samt ennþá eitt albúm, þetta með myndum frá forsetaheimsókninni í Ásbyrgi … en ég hef ekki brjóst í mér til að bögga gamalmennið meir!) og póstkortin. Myndirnar í albúmunum eru afar illa farnar og verður spennandi að sjá hverjum má bjarga og hversu langt […]
Ég hef sigið neðar á geðslagsmælikvarðanum undanfarna daga. Það er hundleiðinlegt! Eitt sem fylgir er rugl á svefni: Nú sef ég á þrískiptum vöktum og næturvaktinni lýkur kl. 5. Ég reyni að njóta rólegheitanna þegar heyrist ekkert nema tístið í litlu góðu fuglunum (við að skíta á pallinn minn) og smellirnir í bréfalúgunni þá pappírsflóðið […]
E.t.v. hafa dyggir lesendur mínir gaman af því að sjá hvað ég hef verið að bardúsa upp á síðkastið. (Þessa klausu skrifa ég svo engin(n) haldi að ég sé beinlínis að fara að monta mig - ó, nei!) Ég segi ekki að ég gangi prjónandi milli bæja en aftur á móti hugsa ég stundum um […]