Færslur mánaðarins: október 2008

Pirringur

Ég var últra-geðvond í gær út af ýmsu í umhverfi mínu sem ég fæ vitaskuld ekki breytt. (Að sjálfsögðu á þessi yfirlýsing ekki við nemendur - mér leið skást inni hjá þeim.) Það sem pirrar mig mest hefur verið lengi til staðar en yfirleitt tekst mér að líta fram hjá því, hugsa með vorkunn eða […]

Tilkynningarskyldan

Var að vakna … eftir þriggja tíma bjútíblund => er nokkuð normul í augnablikinu.  Það gekk allt á afturfótunum hjá mér í morgun, í Eglu, því ég mismælti mig þvers og kruss í Vínheiðarorustupakkanum! Var þó útsofin en blessuð börnin bentu mér á að nú segði ég Aðalsteinn Skotakonungur og gott ef ég var ekki […]

Mamma ætlar að sofna / því mamma er svo þreytt …

Nú er ég búin að beita því læknisráði sem mér hefur reynst best hingað til; sofa, sofa og sofa alla helgina. Enda líður mér snöggtum skár. Gallinn við þetta ágæta ráð er að ég þarf að vinna á rúmhelgum dögum og get ekki unnið sofandi. (A.m.k. er ég hrædd um að það myndi fattast!)
Eitt sinn […]

Brothættir tímar framundan

eða á ég að segja “brothætt lífsleiðin framundan” þar sem tímar geta augljóslega ekki verið brothættir … hitt er bara svo helv. hátíðlegt.
Ég meldaði mig veika á föstudag og lagðist í maraþon-svefn. Blíðlega sagði ég sjálfri mér að þetta væru eftirstöðvar af flensusprautu fyrr í vikunni. Kalt raunsætt mat ber á móti og segir algera […]

Týnda barnið

Meðan ég las gegnum Konuna í köflótta stólnum var mér hugsað til þess hvað gæti átt við mig og hvað ekki.  Mjög margt átti við, t.d. svissið úr klassískum verkum í popplög, þess vegna ABBA. Báðar hafa þessar konur, sú í stólnum og ég, prófað aðferðina “drekkja sorgum sínum”, árangurslaust. (Ath. að þetta er bara […]

HARPA: 1, MÚS: 0

Það fór þó aldrei svo að við hjónin lytum í lægra haldi fyrir músarkvikindi! Nei, maðurinn beitti súkkulaðirúsínunum sínum (takk fyrir tipsið, Sóley!) og það gerði gæfumuninn.  Ég hugsa að Samúel Örn, minn gamli bekkjarbróðir, hefði sagt að nú hefði músin mátt lúta í gras fyrir íbúum þessa heimilis!
Eftir langar og gáfulegar samræður við tengdamömmu […]

Tímavarpan, myndir og hljóð

Undanfarnir 3 sólarhringar hafa verið um einn mánuð að líða. Þetta er sjúkdómseinkenni (nokkurs konar “pas på” áminning til bloggynju) en þarf ekki að leiða til neins slæms, sérstaklega ekki núna því miðannarfríið er í næstu viku. Á morgun fæ ég 55 ritgerðir. Ég sé til með líðan, ástand og heilsu og met hvort borgar […]

Auðn og tóm í miðju einskisins

(Steinn Steinarr vildi nú meina að auðnin og tómið væru bak við þá grímu sem þú berð … þetta er ansi svartsýnn partur af “Það bjargast ekki neitt, það ferst, það ferst …”  Ég er of frísk til að fíla Stein almennilega!)
Nema ég skrapp í bankann á Neðri-Skaga og fékk útskýrt hvað er nokk sikkert og […]

Hver er?

   
    
    
     
   
   
      
  
  
  

Meistari eða ekki meistari

Til að peppa mig upp eftir veikindadag, hvar sjúkdómseinkenni voru verulega fjölbreytt, sem bendir til þess að mig hafi hrjáð kvíði, af engu eins og venjulega … sumsé ætla ég að skrifa lært blogg um orðið “meistari” og setja fram kenningar og láta eins og ég sé eitthvað lærð kona þótt ég viti fyrirfram að […]