Útskrifuð

Ég var formlega útskrifuð af geðdeild í dag. (Sem betur fer er manni sagt að maður sé velkominn aftur, sem er virkilega sætt boð, en ég vona að ég þurfi ekki að þiggja það.)

Ég má byrja að vinna á fimmtudaginn. Vona að næstu tveir dagar gangi sæmilega hjá mér, heima á minni einkageðdeild. Ég er a.m.k. ákveðin í að passa mig sem mest og gera sem minnst - hef lítinn áhuga á að versna á ný!

Of þreytt til að skrifa meir …

2 ummæli

  1. Eva Bjarnadóttir
    9. nóvember 2009 kl. 22.38 | Slóð

    Gangi þér vel.

  2. guðrún
    10. nóvember 2009 kl. 7.59 | Slóð

    ég veit að þetta gengur vel.
    bestu kveðjur GE

Rita ummæli

Netfangið þitt verður ekki birt.