Þetta eru mikilvægustu úrslit helgarinnar á mínu heimili! Það versta er búið (2 fyrstu næturnar og seinnipartar daga) og í lok næstu viku verður eins og ég hafi aldrei snert á Seroqueli. Þar lýkur 9 vikna tröppun! Hárlosið, sem var búið að gefa í skyn að væri ímyndun í mér, er hætt; baðkerið og hárburstar ekki […]
Ég óska öllum lesendum mínum (og örfáum ólesandi ættingjum) gleðilegs sumars. Óvísindalegt tékk síðasta vetrardag leiddi í ljós að einungis sirka 5% nemenda minna - nýnema og kannski annars árs - vissu að það byrjaði einhver sumarmánuður þennan fimmtudag, hvað þá að hann héti því gullfallega nafni harpa! Núna vita a.m.k. 85% nemenda í þessum […]
er allt fínt að frétta af mér. Reyndar svo fínt að ég hef verið að dúlla við ýmislegt sem ég hafði enga orku til áður og þ.a.l. lendir bloggið dálítið aftarlega á merinni í dugnaðinum. Maðurinn veltir mér upp úr því að ég sé í rauninni núll og nix eftir að hafa gengið af Feisbúkk […]
Það sem í uppeldi mínu kallaðist “leggjast í kör fullfrísk manneskjan eins og aumingi!” heitir núna “taka sloppadag svo maður (öllu heldur kona) höggvi ekki mann og annan í fjölskyldunni (ekki bókstaflega, þetta er metaphorically speaking og sýnir áhrif þess að kenna Eglu tvisvar á ári í tuttugu ár!).” - Svo er Leó að spyrja […]
Svartagallið (melankólían) í mér bullar og sýður meðan ég dúlla mér hægt og rólega við að hætta á hverju lyfinu á fætur öðru. Eftir að ég sendi lækninum mínum lista yfir 17 geðlyf/ geðdeyfðarlyf/ sefandi lyf/ róandi lyf og svefnlyf - í rauninni hefðu þau átt að vera 18 því ég gleymdi einu - á […]
Af hverju ætli menn (lesist karlar) séu svona svag fyrir fuglkvikindinu fálka? Í 5 ár átti ég heima við súlu með steindum fálka þeim sem settist á Keldunesbæinn í miðri fæðingu árið 1711. Þetta þótti náttúrlega vita á eitthvað í denn.
Svo er ég búin að finna mynd af ljósbláa fálkafánanum í fórum afa míns sjálfstæðismannsins (fáninn […]
Ég hef dúllað mér við það í morgun að lesa moggafréttir og bloggafleiður af þeim. Beinar tilvitnanir í sjálfstæðismenn eru svo óþægilega ofanaf-flettandi að annað hvort gerast þessir menn sjálfkrafa upp til hópa sjálfbjarga einhverfir (sem m.a. eiga erfitt með að greina milli aðal- og aukatriða, sem og túlka umhverfi sitt) eða eru hreinlega paff og […]
Nú fékk ég bók með ýmsum pappírum í, frá Ástu frænku, í gær. Þetta reyndust hins vegar alls ekki vera þeir pappírar sem kallaðir eru “bréfin” og eru týndir. Nei, a.m.k. einn langur texti, skrifaður með pennastöng og kolsvörtu bleki, ársettur 1907, er líkræða yfir Guðrúnu Grímsdóttur Laxdal. Líkræðan er ofboðslega löng og ofboðslega margt […]