Færslur mánaðarins: september 2009

Áhrif kryppunnar á Kringluna

Bloggynja brá sér til þurrabúðarinnar handan Flóans í dag, aðalerindið var að hitta sinn góða lækni en aukaerindi að reyna að eyða sotlu fé í flíkur. Í þessu seinna skyni sótti ég Kringluna heim, haldandi fast við eitt af meginprinsippum í mínu lífi sem er að fara aldrei í Smáralind (í þeirri von að þessa […]

Sjúkdómavæðing skólakerfisins

Undanfarið hefur grátkór þeirra sem finnst að skólar skuli einnig akta sem heilsuhæli orðið æ háværari. Og ég verð æ leiðari á þessu!  Vissulega eru einhverjir nemendur haldnir streitu, kvíða, prófkvíða, ofsakvíða, þunglyndi, depurð, kreppuáhyggjum, ofvirkni, athyglisbresti, lesblindu, skrifblindu og eru skilnaðarbörn, jafnvel margföld skilnaðarbörn og eiga alkóhólíska, atvinnulausa, geðsjúka eða einfaldlega leiðinlega foreldra. Eins og […]

Dýrseldar einokunarkerlingar í þjóðbúningabransa!

Tæpast hefur farið fram hjá dyggum lesendum mínum að ég erfði þjóðbúninga á afmælinu mínu og hef verið afskaplega upptekin af því að skoða, lesa mér til o.s.fr. og yfir mig glöð og hreykin yfir að hafa eignast þessar gersemar!
Í ljós hefur komið að mig vantar blússu, öllu heldur skyrtu, við upphlutinn. Ég hélt að […]

Er Lísbet Lína?

Í dag kláraði ég Luftkastellet der blev spængt, sumsé þriðju bókina Stieg Larssons og þá síðustu vegna ótímabærs fráfalls höfundarins. (Ansans!!!)
Ég er ósammála því að bókin sé langdregin. Hins vegar er allt í lagi að hraðlesa eitthvað af þessum rúmu 700 síðum - tók mig föstudag til sunnudags að klára hana, inn á milli ýmiss […]

Ein dugleg í ammælisgjöfunum!

Af því ég hafði bannað fólki að gefa mér stóra pakka (sem næstum allir fóru eftir) og afþakkað alla skartgripi (er þó mjög ánægð með þennan eina sem ég fékk því hann er verulega spes og mun gera sig vel í kennslu!) … af þessum sökum fékk ég aðallega umslög í afmælisgjöf. Í dag tók […]

Botninn í námskeiðahaldi

Í dag sátum við starfsmenn FVA svo lélegt námskeið að það er óumblogganlegt!

Ærdrukknanir og fyrirkvíðanlegur andskoti

Þetta er stutt færsla. Langa færslan um orðafátækt ungs fólks bíður betri tíma. Sömuleiðis rökstuddar staðhæfingar um að sé texti mikið lengri en einn lítill skjár á farsíma sé sá texti of erfiður til að lesa hann.  Mun enn á ný verða rifjuð upp kenning Heimis Pálssonar um homo loquens og homo laborans. En þetta issjú […]

Ammæli!

Fyrirsögnin er sérstaklega stafsett fyrir kverúlanta sem pirrast yfir því sem annað fólk skrifar og einnegin hvernig annað fólk skrifar
Í gær var sumsé haldið upp á afmælið mitt í faðmi fjölskyldanna (minnar og tengda-).  Þetta er nú þó nokkur fjöldi sé allt talið! Sem afmælis”barn” þurfti ég ekki að gera nokkurn skapaðan hlut, hvað […]

Mín elskanlegu

Titillinn vísar að sjálfsögðu til nemenda minna! Þeir eru eins og hugur manns; hlýtur að vera einstakur árgangur í nýnemauppskeru haustsins!  Þessir krakkar mæta vel, sýna áhuga, vinna eftir getu og eru með á nótunum í kennslustundum, sem er einmitt risakostur í augum kennara. (Átt er við að ekki þurfi að svara spurningunni: “Í hvaða […]

Eru kennarar fyrirmyndir nemenda?

Enn og aftur fæ ég að heyra frá fólki sem telur að kennarar séu í djobbinu allan sólarhringinn og séu nemendum sínum einhver rosasterk fyrirmynd!  Reyndar efast ég ekkert um að slíkir kennarar eru til; þeir kenna 6, 7 og 8 ára börnum, sem eru nógu saklaus til að halda að góða konan í skólanum […]