Eins og ég hef einhvern tíma bloggað áður þá er varla tilviljun að þolinmæði og sjúklingur er nánast stafsett eins meðal engilsaxa! Og víst er að ég hef ekki nóga þolinmæði (eða æðruleysi) úr því mér er stöðugt sköffuð frekari æfing í slíku, þótt ég sé að verða vitlaus á þessu!
Mér batnar sumsé ekki neitt … vikur […]
Ef þess væri nokkur kostur væri ég í bælinu í dag. Þess er hins vegar ekki kostur og því hef ég brugðið yfir mig karlmennskugrímu sem myndi sæma hvaða Íslendingasöguhetju sem er (nema Agli því hann þurfti stundum að láta undan síga fyrir helv. þunglyndinu … en sennilega hafa þeir Þorgeir Hávarsson og Þormóður félagi […]
23. nóvember 2009 – 19.24
Í dag hef ég raulað margoft inní mér: Veröld fláa sýnir sig / sú mér spáir hörðu / flestöll stráin stinga mig / stór og smá á jörðu … og lundin hefur eilítið lést við slíkan harmagrát. Lagið er líka einstaklega trist.
Til frekari upplyftingar spilaði ég Ellen Kristjáns syngjandi sálma í mínum gamla mp3-spilara meðan […]
20. nóvember 2009 – 18.28
Þegar tekin var af mér sjúklingaskýrsla inni á deild 32 A fyrir rúmum mánuði síðan gaf hjúkrunarfræðingurinn í skyn að ég væri Rivotril-fíkill. Blessunarlega var ég sjóuð í því kjaftæði síðan ég kynntist ógleymanlegum læknanema í sumar, sem greindi mig óséða gegnum símtal Sú á Lans sagðist hafa “lært það í skólanum” að Rivotril […]
19. nóvember 2009 – 15.30
frá bloggynjunni, sem er óendanlega þreytt alltaf! Þessir hektísku síðustu kennsludagar + prófatilbúningur eru ekki hollir fyrir hálfgeðveika manneskju; ég hef hreinlega ekki orku í þetta! Orkan fer öll í kennslustundir.
Ég gefst upp við að hugsa meira í dag (var að reyna að berja saman lokapróf) og fer þess í stað í að aflúsa skrárnar […]
15. nóvember 2009 – 18.33
hefðu farið á fund í morgun og jafnvel hlaupið upp fjall eftir fundinn … a.m.k. farið með sínum ektamaka í labbitúr út á Elínarhöfða eða setið veltilhafðar við hannyrðir á þessum Drottinsdegi.
Sú sem þetta bloggar hefur hins vegar hangið í bælinu um helgina, tókst að ljúka morgunsturtu núna rétt fyrir kvöldmat og prjónar hafa legið […]
11. nóvember 2009 – 16.23
Ég fór í morgun upp í skóla, hitti mína forfallakennara og tók statusinn. Sömuleiðis sýndi ég mig á kennarastofunni. Ótrúlega margir buðu mig velkomna aftur, sem yljaði náttúrlega og var til bóta því ég skalf eins og hundur allan morguninn áður en ég skrapp yfir götuna. Skjálftinn tengist kennarahópnum ekki baun, hann kemur ósjálfrátt við […]
Ég var formlega útskrifuð af geðdeild í dag. (Sem betur fer er manni sagt að maður sé velkominn aftur, sem er virkilega sætt boð, en ég vona að ég þurfi ekki að þiggja það.)
Ég má byrja að vinna á fimmtudaginn. Vona að næstu tveir dagar gangi sæmilega hjá mér, heima á minni einkageðdeild. Ég er a.m.k. […]
Ég fékk langt helgarfrí og er komin upp á Skaga. Þetta er líka prófsteinn á hversu vel ég þrífst utan stofnunar. Ég er voðalega þreytt!
paa Galehuset! Í gær var ég nokkurn veginn OK, fannst veður fagurt og fór í langan löbbutúr. Í dag seig allt aftur í sama farið. Má segja að frá því laust eftir hádegi sé ég fötluð, fatlaðri eftir því sem líður á daginn og á kvöldin orðin að múmíu. Að sjálfsögðu leik ég Pollýönnu eftir […]