Færslur mánaðarins: desember 2009

Gleðilegt nýtt ár!

Ég óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir gamla árið!  Þessi kveðja er kannski dálítið snemmbúin því enn eru margar klukkustundir eftir af þessu ári … en miðað við líðan í gær er eins gott að tjá sig þegar færið gefst.
(Ég hef alltaf haldið að ég vissi hvar botn þunglyndisins væri. Núna veit ég […]

Möbíus

Dagurinn í dag hefur verið með skásta móti og ég fylgt fötum núna seinnipartinn. Ég nenni samt ekki að skrifa um eigin líðan í augnablikinu (hún hefur hvort sem er ekki breyst sem heitið getur lengi …) en set inn stutta færslu til að grobba mig af því að ég er að prjóna Möbíusar-herðaskjól (Freyja!!!) […]

Ég óska

dyggum lesendum gleðilegra jóla, árs og friðar!

Ég þarf ekki að skammast mín

þótt ég verði að þiggja ölmusu hins illa stadda “ríkis” fram í ágúst á næsta ári!  Nei, ég hef unnið mér inn þennan rétt og á stolt að nota hann … sem og sætta mig við geðveikina sem gerir mér ókleift að vinna eins og manneskja eða yfirleitt vera human being suma daga!
Aftur á móti […]

Bara

engar fréttir. Dagurinn í gær var fínn enda lá ég í rúminu bróðurpart dagsins. Þannig tókst mér að lesa heila bók. En ég merki enga sérstaka breytingu á líðan og reikna með að hún verði slæm áfram og ég fötluð.
Jósefína virðist hafa stofnað síðu á Facebook í nótt - a.m.k. lá vinaboð frá Jósefínu Dietrich í […]

Erfiður dagur framundan

Ef þetta morgunsár hefur forspárgildi þá verður dagurinn langur, dimmur og kaldur. Fór á fætur rúmlega fimm og fékk ekki nema rétt hálftíma ógeðveik. Veit ekki á gott.
Það er slatti af smámunum sem ég á eftir að gera, t.d. pakka utan um jólagjafir og  fara í sturtu. Allt þetta vex mér í augum og ég […]

E.t.v. hætt að versna?

Í gær fór ég í hálftíma upp á Byggðasafn, á handverkssýningu. Það var mér nánast um megn en ég kláraði dæmið án þess að hrynja skjálfandi og grenjandi upp í rúm, eftir að hafa séð allt þetta fólk og alla þessa handavinnu. Ég hrundi bara upp í rúm og lá þar í 2 -3 tíma, […]

Dagurinn í gær

var skárri! Ekkert alvarlegt grátkast með skjálfta og svima og ógleði … sem er gott. Enn get ég lítið gert; t.d. hvorki lesið né fylgst að ráði með sjónvarpi. Ég prjóna og hlusta á rás 1 (jólagaggið á hinum stöðvunum er ábyggilega óhollt fyrir litla geðveika konu!).
Jósefínu er nú ljóst hver er eigandi hennar (og […]

Ef

ég sæi minnsta möguleika á að fá almennilegt læknadóp inni á geðdeild færi ég umsvifalaust á bráðamóttökuna! Ég gæfi hvað sem er til að fá frí frá sjúkdómnum í nokkra klukkutíma á dag! Því miður er allt tálvonir og ég verð að lifa í þessu helvíti áfram, með minni eigin skömmtun lyfja. Þetta minnir mig […]

Fokið í flest skjól

(metaphorically speaking) - en mér hefur ekki tekist að klæða mig í dagföt, fara út í 50 m í burtu búðina, prjóna skammlaust (villurnar eru orðnar svo margar að ég mun halda því fram að þetta sé svokallað “anarkískt munstur”!) o.s.fr. Maðurinn fór í búðina og í hraðbanka fyrir mig en lá við að bankinn […]