Ummæli við „Blogg Hörpu Hreinsdóttur“

Ummæli við „Samtíningur“ skrifar Harpa
Ástarþakkir fyrir allar upplýsingarnar, Trausti! Ég skoðaði Gegnisfærslu á plötu Ólafs frá Mosfelli og sá ekki að Sonja væri á meðal laganna … nema lagið heiti eitthvað allt annað og mér datt aðeins í hug að Merikanto hefði kannski útsett það … en líklega er rétt að söngur Ólafs sé eingöngu varðveittur í upptöku RÚV. Það væri óneitanlega gaman að eignast söng Sigurðar Skagfield á þessu lagi

Best að lúsarkemba Vefinn í leit að Eugen Párloz ef finnast skyldu nótur einhvers staðar … og e.t.v. hafa samband við Ágúst Guðmundsson. (Þetta gerist samt auðvitað ekki fyrr en ég hef þrifið húsið!)

Ég hef í rauninni lítinn áhuga á texta Stjórnar en úr því þú hampar honum svo mjög er aldrei að vita nema ég lesi hann. Ég var svona meira að sverma fyrir skreytingunum. Það má hugga sig við að íslenska ríkið á væntanlega höfundarétt á þessu verki og maður er þá bara að snuða ljósmyndarann ef ég nota skreytingar í hannyrðir (stafrænar eða á höndum), Mér finnst höfundaréttur á einfaldri ljósmyndun ríkisstarfsmanns reyndar orka mjög tvímælis, svo ekki sé á það minnst að handritin eru eign þjóðarinnar en ekki þeirra sem hafa lykil að geymslunni í Árnastofnun. Mér finnst einnig til háborinnar skammar að ekki liggi frammi sæmilega vandaðar ljósmyndir af frægustu handritunum okkar, á Sagnaneti eða handrit.is. Sjálf hef ég auðvitað látið höfundarétt sem vind um eyru þjóta þegar ég mynda styttur og steina og birti á Vefnum og leyft frjáls afnot af þeim myndum ef ég hef verið spurð (sem gerist einstaka sinnum en er alger óþarfi að mínu mati).

Enn og aftur: Kærar þakkir, Trausti. Það er virkilega gaman að fá þennan óvænta fróðleik um Sonju. Ég reyndi aðeins í gær að pikka lagið upp, á pjanófortið, en gekk illa enda gengur mér frámunalega illa að spila án nótna.

Ummæli við „Samtíningur“ skrifar Trausti Jónsson
Ég held að lagið um Sonju sé ekki á plötu Ólafs frá Mosfelli, en mig minnir að hann hafi sungið það og nokkur önnur ámóta lög (e.t.v. Svörtu augun og Við bálið) með mandólínhjómsveit Sigurðar Briem. Sú upptaka hefur þá heyrst öðru hvoru í Útvarpinu. Því miður á ég aðeins Við bálið úr þeirri setu. Sigurður Skagfield söng lagið hins vegar á plötu árið 1930 við undirleik hljómsveitar í Berlín. Lagið var í uppsveiflu um þær mundir. Freysteinn Gunnarsson þýddi textann. Á plötunni er lagið allt, með forsöng, en forsöng vantar gjarnan í nýrri prentuðum útgáfum dægurlaga. Ég á þessa plötu en hef ekki komið henni í stafrænt form. Mig minnir (já, ég hef mjög gott misminni - en minnið er síðra) að Comedian Harmonists hafi einnig sungið lagið, en þeir sungu reyndar annað Sonjulag (mig minnir að það sé ekki það sama). Á plötu Sigurðar er lagið sagt eftir Eugen Párloz (eða öfugt - ungverjar eru með sérvisku í nafnaröð eins og við). Hraðleit á netinu skilar engu fyrir þennan mann - ekki er einusinni víst að hann sé ungverskur eða rétt stafsettur. Maður sem er líklegur til að vita allt um þetta (ekki bara misminna) heitir Ásgeir Guðmundsson og er sagnfræðingur. Hann hefur sérhæft sig í þýskum vinsældalistum millistríðsáranna og tók íslensku nasistana í leiðinni.

Svo er það með Stjórn, textinn var gefinn út fyrir fjölmörgum árum. Hafir þú ekki lesið hann gef ég honum mín bestu meðmæli, þetta er ekki venjuleg biblíuþýðing, minnir frekar á þá frægu Alexanderssögu sem Karl Guðmundsson las í útvarp fyrir 10 til 15 árum og var endurútgefin skömmu síðar, öllum til ánægju sem lesa vilja.  Stjórn er nú ófáanleg - því miður.

Ummæli við „Jósefína horfir á heiminn“ skrifar Harpa
Ah … sorrí … ég las ekki kommentið nógu vel … minn var úr Navia bandi en rosalega laust prjónaður og þæfðist þess vegna vel. (Fastprjónað minnkar ekki eins mikið.)

Ummæli við „Jósefína horfir á heiminn“ skrifar Harpa
Fer eftir því hvort hann er úr tiltölulega hreinu ullargarni eða einhverju Superwash dæmi … Ullarblanda sem má þvo á 40° þæfist ekki í vél. Ég mundi prófa - þú tapar hvort sem er ekkert á því ef hann passar ekki fyrir. En ég ráðlegg að þvo hann ekki með handklæðum … hef þurft að tína hvíta handklæðaló úr mínum.

Ummæli við „Jósefína horfir á heiminn“ skrifar guðrún
á einn Möbíus sem passar hvorki á herðar eða háls, er úr færeysku bandi.

Finnst þér að ég eigi að setja hann í vél?

Ummæli við „Jósefína horfir á heiminn“ skrifar Harpa
Mér skilst að hundurinn Kubbur lúti ægivaldi Ása, 6 mánaða fresskettlings, á sínu heimili. Ætla má að hann verði passlega undirgefinn þá hann kemur í heimsókn. Vonandi klórar Jósefína hann ekki umsvifalaust.

Jósefína virðist haldin almennri kvíðaröskun (tell me about it!) eftir fundinn við fressið illa. Bloggynju líður eins og hún hafi eignast ungabarn á ný … miðað við vælið í nótt! Spurning um að gefa kettinum bensó-lyf á kvöldin? (Þetta ber ekki að taka sem alvöru-uppástungu.)

Takk fyrir hrósið - vér hannyrðakonur verðum einmitt að hafa slatta af aðdáendum og æskilegt að þeir séu ekki mjög innviklaðir í handavinnu sjálfir   Hef ákveðið að bíða með stafrænu hannyrðirnar þangað til ég hef skrifað undir samning við litla góða ráðuneytið … Hver þarf stafræna handavinnu þegar maður hefur Möbíus?

Ummæli við „Jósefína horfir á heiminn“ skrifar hildigunnur
ekki smá flottur Möbius - þá veit maður hvað það er…

Grey kisulóra, andstyggilegt að lenda í svona slagsmálum!

Ummæli við „Jósefína horfir á heiminn“ skrifar Gurrí
Jósefína er æðisleg kisa, hugumstór og gullfalleg!

Hún gæti jafnvel komið þér á óvart varðandi hundinn. Mínar kisur (Tommi og Kubbur) þola illa aðra ketti og það er ekkert grín að reyna að passa Gunnhildi. En … þegar ég gætti smáhundar í heila viku í fyrra þá voru hlutirnir allt öðruvísi, ekkert hvæst, bara smá fyrirlitning og afskiptaleysi. Hundspottið hreifst mjög af Tomma og reyndi oft að leggjast hjá honum. Tommi færði sig fljótlega, enda lætur sómakær köttur sig ekki hafa það að kúra hjá smáhundi. Hver veit samt hvað hefði gerst ef hundurinn hefði verið lengur í pössun?

Flottar myndir. Ég dáist að hannyrðasnilld þinni, get svo sem heklað gardínur og slíkt, eða gat, og læt mér núna nægja aðdáun á myndarskap annarra.

Ummæli við „Draumalandið er Karlalandið!“ skrifar Form. ICBS
Sló bók Andra ekki í gegn vegna þess að hún dillaði svo mörgum á sínum tíma?

Þarna var boðið upp á smáskammt af Ísland-best-í-heimi, smáskammt af iss-það-er-enginn-vandi-að-græða-ef-ríkið-heldur-að-sér-höndum-og-allt-er-frjálst og vænum slurk af umhverfisrómantík. Þetta rann býsna ljúflega niður í fólk í 2007-partí-stuði.

Ummæli við „Draumalandið er Karlalandið!“ skrifar Harpa
Hm … fyrst þegar ég las kommentið fylltist ég yndi og aðdáun enda sýndist mér standa þarna Morten Lund og sá í hendi mér að litli bróðir Söru Lund væri farin að kommentera.

Hvernig dettur þér, Morten Lange, í hug að þessi færsla mín eigi að vera málefnaleg gagnrýni myndarinnar? Mér finnst þessi mynd ekki virði málefnalegrar gagnrýni, ekkert frekar en hvaða sunnudagsvídjó RÚV annað og færslan líkist hvaða Fésbókarfærslu sem er. Blogginu til framdráttar? Ja, það fer auðvitað eftir því hvers lags lesendum menn sækjast eftir eða hvort þeir eru bara að spá í að kýla upp innkíkifjölda (sem mætti ná með því að reka fleiri en eitt blogg). Þessi bloggynja svermar fyrir vel læsu fólki af ýmsum toga og finnst meira varið í að hafa góða lesendur en marga. Vel læsu dyggu lesendurnir ættu að vera vanir færslum af ýmsu tæi.

Það er náttúrlega að negla lokið í líkkistu græningja að minnast þess hve ljótt mér þótti á Þeistareykjum, þegar ég kom þangað líklega 8 - 9 ára gömul. Ég hafði aldrei fundið hveralykt áður og fannst þessi reykur alger viðbjóður! Svoleiðis að sínum augum lítur hver á silfrið og ég get vel skilið að fólki uppöldu í þéttbýli finnist æðislega skæs að komast í einhverja eyðimörk þótt öðrum finnist það ekki. Ég er mest sammála manninum í myndinni sem sagði eitthvað á þá leið að landslag á Íslandi hefði alltaf verið og væri alltaf að breytast - af hverju væri þá ekki í lagi að menn breyttu svolitlu?

Ég hjóla nú ekki par þrátt fyrir að búa á því flata Akranesi en hafði á tímabili gaman af því að rölta um hálendi og eyðibyggðir. Það er fagnaðarefni að nú geti menn hjólað upp að Kárahnjúkavirkjun og að svæðið sé aðgengilegra en áður, finnist fólki það svona eftirsóknarvert. Sama gildir um aðra spennandi vegi utan byggða; Flestir eru línuvegir og ef engin væri virkjunin sæti fólk væntanlega heima eða léti Þingvelli og Laugarvatn duga. Virkjanir hafa opnað betri aðgang að hálendisperlum en margt annað.

Ég nenni ekki að tjá mig um Alcoa eða báxít-framleiðslu eða hernaðarbrölt í BNA … annað en það að við hér á Skaganum erum doldið ánægð með okkar góða Járnblendi og Álver. Hefðum við ekki þessa stóriðju byggi hér færra fólk og við værum jafnvel ofurseld auðhringum á borð við Bónus og Lyfju!